Saunur og saunahús

Útisauna er einföld leið til að búa til hvíldarrými í garðinum allt árið um kring. Hér finnur þú tunnusaunur, pod-saunur, saunahús með forrými og saunur á hjólum — allar smíðaðar úr hægvaxta timbri sem er þéttara í sér og þolir vel íslenskt veðurfar.

Húsin eru framleidd í Eistlandi og afhent sem byggingasett með teikningum og samsetningarleiðbeiningum. Leiðbeinandi verð er með 24% VSK og miðast við afhendingu hjá flutningsaðila á höfuðborgarsvæðinu. Hægt er að óska eftir tilboði í flutning á byggingastað og í uppsetningu í pöntunarferlinu.

Saunahús

Tunnu-, oval- og pod-saunur

Saunur á hjólum

Hvað þarf að hafa í huga?

  • Undirstöður: undirstaðan þarf að vera tilbúin og lárétt áður en saunan er afhent.
  • Ofn og rafmagn: saununum fylgir ekki raflögn; löggiltur rafvirki tengir ofninn á staðnum.
  • Staðsetning: gott aðgengi fyrir flutningabíl skiptir máli, sérstaklega fyrir tunnusaunur og saunur á hjólum.
  • Viðhald: timbrið endist best sé það fúavarið eða olíuborið stuttu eftir uppsetningu.